Stefán slasast á leik í Austurríki
Stefán Arnar Ómarsson fyrrum varnarjaxl Tindastóls slasaðist þegar hann var á meðal áhorfenda á leik Austria Vín vs. Rapid Vin í Austurríki um síðustu helgi.
Fram kemur á heimasíðu Tindastóls að Stefán sat ásamt bróður sínum Ingva Hrannari mjög neðarlega og ekki langt frá hliðarlínunni. Þar var mikill æsingur á meðal stuðningsmanna liðanna. Undir lok leiksins var kveikt á blysum og mikill reykur lagði yfir völlinn svo vart var hægt að fylgjast með gangi leiksins.
Einn leikmaðurinn spyrnti boltanum fast útaf vellinum og hæfði hann Stefán beint í höfuð. Stefán náði að skalla boltann um 40 metra tilbaka en í látunum skáru gleraugu hans hann við vinstra augað. Stefáni var komið undir læknishendur þar sem gert var að meiðslum hans.
Þar sem enginn sá handa sinna skil á þessum tímapunkti stöðvaði dómarinn leikinn og var leikinum loks haldið áfram þegar Stefán snéri tilbaka eftir að gert var að sárum hans. Leikurinn endaði með jafntefli 1-1.