Stefnir í roknafjör á Eld í Húnaþingi

Unglistahátíðin Eldur í Húnaþingi verður haldin 25. – 29. júlí og óhætt að segja að stemningin sé að stigmagnast. Dagskrá hátíðarinnar hefur verið birt á facebook-síðu hátíðarinnar en samkvæmt henni stefnir allt í roknafjör í Húnaþingi. „Eins konan sagði „haltu á ketti hvað það verður gaman!““ segir á facebook-síðunni.

Ffjölbreytt dagskrá verður frá morgni til kvölds og ætti eitthvað að vera við allra hæfi. Þar má nefna listasýningar, leikir fyrir börnin, sirkusnámskeið og ÚtiYoga. Þá verða fjölmargir tónleikar úr ýmsum tónlistarstefnum; allt frá klassískri tónlistarveislu í Hvammstangakirkju, kósístemningu með Ylju í Borgarvirki, rapphljómsveitin Úlfur Úlfur stígur á svið, boðið verður upp á blúsrokk með Bedford Splinters og í kjölfarið rokkað með Jet Black Joe en einnig verður haldinn stórdansleikur með Buff á laugardagskvöldinu.

Dagskrá Elds í Húnaþingi er svohljóðandi:

Miðvikudagurinn 25. júlí

  • Kl. 19:00 - Opnunarhátíð Eldsins við Hafnarsvæði.
    • Unglistareldurinn tendraður
    • Unglistarlagið flutt
    • Hljómsveitin Mirra stígur á stokk. Hljómsveitin Mirra tók þátt í Hæfileikakeppni Íslands. Bandið skipa Húnvetningurinn Jón Ingvar Múlaprins ásamt frændsystkinum hans.
    • Harmonikkuleikur ásamt því að stigin verða létt spor í anda gömlu dansanna. Nína á Kolugili verður í spariskónum.
    • Teiknisnillingurinn Birgir í Sporði mun teikna skopmyndir af gestum og gangandi. Frjáls framlög til listamannsins.
    • Gómsæt kjötsúpa í boði Reykjaskóla verður í boði fyrir alla.
    • Nytjamarkaðurinn verður opinn.
    • Unglistarsjoppan opnar. Að þessu sinni verður hún í húsbíl sem ferðast á milli staða. Dýrindis sætindi, gosdrykkir og grillaðar samlokur.
  • Kl. 19:00 - Opnun listasýningar í kjallaranum í Sigurðar Pálmasonarhúsinu, þar sem verk heimamanna verða til sýnis.
  • Kl. 22:00 - Klassísk tónlistarveisla í Hvammstangakirkju.
    • Kirkjan hefur fest kaup á nýju píanói og verða tónleikarnir hluti af vígsluathöfn þess. Munu þau Ólafur Rúnarsson, Kristín Kristjánsdóttir, nemendur þeirra og vinir syngja undir dyggum meðleik píanóleikaranna Peters Ford og Julie Ahern. Á dagskrá eru létt lög, dúettar, samsöngur og píanóleikur af bestu gerð.

Fimmtudagurinn 26. júlí 

  • Kl. 10:00 - Leikjadagur fyrir börn og unglinga á Mjólkurstöðvartúninu með Karólínu.
  • Kl. 12:30 - Sirkusnámskeið fyrir aldurinn 8-12 ára með Sirkusi Íslands.
    • Skráning skal berast eigi síðar en mánudaginn 23. júlí í gegnum netfangið eldurihun@gmail.is eða í síma: 772-4581. Hámarks þátttaka eru 20 börn. Námskeiðið er ókeypis.
  • Kl. 15:00 - Sirkusnámskeið fyrir aldurinn 4-7 ára.
    • Skráning skal berast eigi síðar en mánudaginn 23. júlí í gegnum netfangið eldurihun@gmail.is eða í síma 772-4581. Hámarks þátttaka eru 20 börn. Námskeiðið er ókeypis.
  • Kl. 15:00 - Borðtennis fyrir alla fjölskylduna upp í íþróttahúsi. Skráning á staðnum.
  • Kl. 16:00 - Skotbolti fyrir alla fjölskylduna upp í íþróttahúsi. Skráning á staðnum.
  • Kl. 17:00 - Fjallaskokk yfir Vatnsnesfjall fimmtudaginn 26.júní, nánari upplýsingar á www.usvh.is. Skráningar sendist á netfangið usvh@usvh.is.
  • Kl. 18:00 - Hverfakeppni á Bangsatúni. Dómnefnd mætir á Bangsatún og þiggur mútur frá fulltrúum hverfanna.
  • Kl. 20:00 - Unglingatónleikar í Félagsmiðstöðinni Óríon með ÚlfurÚlfur. Fyrir 12 – 17 ára. Aðgangur ókeypis.
  • Kl. 20:00 - Unglistarsjoppan opnar og verður opin frameftir.
  • Kl. 21:00 - Melló Músika með local tónlistarmönnum í Félagsheimilinu. Aðgangur ókeypis. Unglistarbarinn opnar og þar verður hægt að væta kverkarnar á meðan á tónleikum kvöldsins stendur.
  • Kl. 23:00 - Tónleikar í Félagsheimili Hvammstanga. The Lovely Lion hitar upp fyrir hiphopbandið ÚlfurÚlfur. 18 ára aldurstakmark. Aðgangur ókeypis.

Föstudagur 27. júlí

  • Kl. 12:00 - Förðunarnámskeið með Möggu Sól fyrir 12 ára og eldri. Skráning skal berast eigi síðar en mánudaginn 23.júlí í síma 6909078 eða solnoi@hotmail.com. Hámarks fjöldi þátttakenda er 14. Námskeiðið er ókeypis.
  • kl. 15:00 - ÚtiYoga með Ástu Jóhannsdóttur á Bangsatúni fyrir unga sem aldna. Þátttaka ókeypis og þátttakendur mega taka með sér teppi sem vilja.
  • Kl. 16:15 - Heimsmeistaramót í Kleppara. Æsispennandi mót í Félagsheimilinu – skráning á staðnum.
  • Kl. 18:00 - Miðtúnsbandið með þeim Helga Rafni Ingvarssyni, Brynhildi Oddsdóttur, Elísabet Ólafsdóttur og fleirum úr ættinni verða með kósý söngstemningu uppi í Hvammi. Fólk er hvatt til að taka með sér kakó á brúsa, kruðerí verður í boði. Ef veðrið bregst verða tónleikarnir fluttir í kirkjuna.
  • Kl. 21:00 - Borgarvirki – Tónleikar á undurfögrum stað með hljómsveitinni Ylju. Ásgeir Trausti vonarstjarna Vestur-Húnvetninga hitar upp.
  • Kl. 23:00 - Unglistarsjoppan opnar og verður opin frameftir.
  • Kl. 23:30 - Jet Black Joe tónleikar í félagsheimilinu Hvammstanga – Blúsrokkhljómsveitin Bedford Splinters hitar upp. 18 ára aldurstakmark. 1500 kr. aðgangseyrir. Unglistarbarinn verður á sínum stað.

Laugardagur 28. júlí

  • Kl. 10:30 - Sápurennibraut í Tommabrekku. Mikið fjör og mikið gaman. Yngsta kynslóðin fær nóg af fjöri í Tommabrekku þar sem hægt verður að renna sér niður sápurennibraut.
  • Kl. 12:30 - Fjölskyldudagur. Grillað lambakjöt  verður í  boði Sauðfjárbænda, pylsur í boði fyrir þau yngstu, hoppukastalar, andlitsmálning, skemmtiatriði, fyrirtækjakeppni, fatamarkaður þar sem skvísur og gæjar úr heimahéraði selja fötin sín, sápubolti og úrslit úr hverfakeppninni verða tilkynnt.
  • Kl. 14:00 - Fyrirtækjakeppni. Með svipuðu sniði og undanfarin ár. Fyrirtæki í sýslunni keppa sín á milli í hinum ýmsu þrautum.
  • Kl. 15:30 - Sápubolti á Mjólkurstöðvartúninu. Skráning á staðnum.
  • Kl. 17:00 - Fótboltaleikur upp í Hvammi.
  • Kl. 20:00 - Fjölskyldudansleikur fyrir alla fjölskylduna með hljómsveitinni Buff í Félagsheimilinu á Hvammstanga í boði Landsbankans á Hvammstanga.
  • Kl. 20:00 - Unglistarsjoppan opnar og verður opin frameftir.
  • Kl. 23:00 - Stórdansleikur með hljómsveitinni Buff í Félagsheimilinu á Hvammstanga 16 ára aldurstakmark.

Fleiri fréttir