Steinull hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í forvörnum og öryggismálum

Frá afhendingu viðurkenningarinnar sl. fimmtudag. Auður Björk Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs VÍS, Einar Einarsson framkvæmdastjóri Steinullar og Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri VÍS. Mynd: VÍS.
Frá afhendingu viðurkenningarinnar sl. fimmtudag. Auður Björk Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs VÍS, Einar Einarsson framkvæmdastjóri Steinullar og Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri VÍS. Mynd: VÍS.

Fyrirtækið Steinull hf. á Sauðárkróki fékk nýlega viðurkenningu frá VÍS fyrir góðan árangur í forvörnum og öryggismálum. Einar Einarsson framkvæmdastjóri Steinullar veitti verðlaununum viðtöku frá Sigrúnu Rögnu Ólafsdóttur forstjóra VÍS. Afhendingin fór fram á forvarnaráðstefnu VÍS og Vinnueftirlitsins á Grand Hóteli í Reykjavík síðastliðin fimmtudag.

„Steinull er gott dæmi um þar sem vel hefur tekist til að efla þátttöku og virkni starfsfólki í öryggismálum vinnustaðarins,“ sagði Auður Björk Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs VÍS við verðlaunaafhendinguna. „Á þriðja hundrað atriða hafa verið skráð með áhættugreiningu og atvikaskráningu undanfarin fimm ár. Lykill að árangrinum er að tvinna saman stórar sem smáar úrbætur þannig að stöðugt er unnið að því að gera starfsemina öruggar.“

 

Sjávarútvegsfyrirtækið Guðmundur Runólfsson í Grundarfirði fékk sambærilega viðurkenningu og þá hreppti Olíudreifing Forvarnarverðlaun VÍS fyrir framúrskarandi árangur í forvarna- og öryggismálum.

Af þessu tilefni gerði VÍS í samvinnu við verðlaunahafana myndbönd úr starfsemi fyrirtækjanna þar sem fjallað er um hvernig þessi góði árangur hefur náðst.

 

Fleiri fréttir