Stelpurnar eiga leik í Síkinu í kvöld
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
24.03.2015
kl. 11.31
Meistaraflokkur kvenna hjá Tindastóli tekur á móti FSu/Hrunamönnum í kvöld kl: 18.00 í Síkinu. Um er að ræða leik sem átti að spila í janúar en var frestað þar sem gestirnir komust ekki þá.
Tindastóll vill skora á heimamenn til að fjölmennum í Síkið og hvetja stelpurnar til sigurs. Síðasti leikur kvennaliðsins verður svo leikinn í Síkinu á laugardaginn kemur, 28. mars, kl. 15.00. Þá mæta Stjörnustelpur á Krókinn.