Sterkur barnaflokkur á Fákaflugi - Myndband

Fákaflug fór fram á Vindheimamelum 26. - 28. júlí 2013 og tókst vel. Athygli vakti hve sterkur barnaflokkurinn var en þar sáust óvenju háar einkunnir. Börnin voru vel ríðandi og sýndu hrossin af mikilli fagmennsku. Guðmar Freyr Magnússon stóð uppi sem sigurvegari á hryssunni Björgun frá Ásgeirsbrekku með einkunnina 8,85 en svo jöfn var keppnin að sú sem var í áttunda sæti hlaut einkunnina 8,33. Hér fyrir neðan má sjá úrslitakeppni krakkanna.

 

http://www.youtube.com/watch?v=jueOyZ9QjBo

Fleiri fréttir