Stjarnan náði jafntefli við Tindastól
Tindastóll lék sinn fjórða leik í Lengjubikarnum í fótbolta í gærkvöldi gegn Stjörnunni sem má teljast heppin að hafa náð jafntefli. Fannar Freyr Gíslason skoraði fyrir Stólana eftir 20 mínútna leik eftir sendingu frá Atla Arnarsyni en Stjörnumenn jöfnuðu í uppbótartíma, með marki frá Gunnari Erni Jónssyni.
-Leikurinn í gær við Stjörnuna var frábær af okkar hálfu. Við stóðum vörnina gríðarlega vel og börðumst allan leikinn og andinn og vinnusemin algerlega til fyrirmyndar. Stjarnan var með gríðarsterkt lið svo þetta var mjög sætt fyrir okkur og uppskerum eins og við sáum í þessu. Ég var mjög ánægður í alla staði, sagði Donni þjálfari kampakátur eftir að hafa landað fyrsta stiginu í mótinu.
Tindastóll er í mjög sterkum riðli en þar situr Stjarnan á toppnum með 10 stig eftir 5 leiki og ÍA með 9 stig eftir 3 leiki. Tindastóll lyfti sér upp úr botnsætinu með stiginu í gær og skildi þar með ÍR eftir sem ekkert stig hefur hlotið enn.
Staðan eftir leiki gærkvöldsins: