Stóð hálendisvaktina þegar ferðamannastraumurinn tók kipp

Björgunarsveitin Húnar stóð hálendisvaktina á Sprengisandi í síðustu viku og samkvæmt heimasíðu björgunarsveitarinnar áttu þeir góða viku í Nýjadal. „Sem betur fer var hún slysalaus þó við hefðum aðstoðað nokkra ferðamenn,“ segir á heimasíðu Húna.

Þegar björgunarsveitarmenn lögðu af stað frá Hvammstanga þann 29. júní var ekki enn búið að opna Sprengisand en unnið var að því.

„Fyrstu dagarnir fóru því í að aðstoða Landverði í Nýjadal við að kanna ástand vega, slóða og koma fyrir skiltum. Það var svo um miðja vikuna sem vegirnir fóru að opnast niður í Skagafjörð, Eyjafjörð og Bárðardal. Við það tók ferðamannastraumurinn kipp og fjölgaði strax þeim sem voru að ferðast um hálendið, einnig varð meira að gera hjá okkur við að draga upp bíla, gera við dekk o.fl.“ segja björgunarsveitarmenn um dvöl sína á hálendinu en þeir snéru tilbaka á láglendið föstudaginn 6. júlí.

 

Fleiri fréttir