Stóðréttir í Víðidalstungurétt um næstu helgi

Víðidalstungurétt fer fram þann 6. október nk. og er það mikið tilhlökkunarefni fyrir þá sem hana sækja ár hvert til. Kristín Guðmundsdóttur frá Miðhópi hefur umsjón með því að koma hrossastóðinu af Víðidalstunguheiðinni og niður í Víðidalstungurétt og má því segja að hún sé fjalldrottning Víðdælinga. Kristín var í viðtali við Feyki fyrir stuttu og þar sagðist hún hlakka til helgarinnar.

„Eitt af því sem fylgir haustinu eru stóðréttir en því fylgir alltaf tilhlökkun að sjá hrossin eftir sumardvöl á heiðinni,“ segir Kristín en um 500 fullorðin hross munu koma niður af heiðinni. „Hér í Víðidalnum er stóðréttin alltaf fyrsta laugardag í október og er stóðinu smalað saman daginn áður, sem í ár er föstudagurinn 5. október,“ útskýrir Kristín og heldur áfram: „Gangnamenn fara frá Hrappstöðum og smala norðasta hluta heiðarinnar. Komið er með stóðið niður að Kolugili seinni part dags og er stoppað þar um stund. Í skemmunni á Kolugili eru seldar veitingar og þar er lagið tekið. Að því loknu er stóðið rekið í hólf skammt frá réttinni og geymt þar til morguns.“ Kristín vekur athygli á því að í kaffiskúrnum við réttina er hægt að fá kjötsúpu á sanngjörnu verði frá kl. 17.

Á laugardeginum segir Kristín að stóðið sé rekið til réttar kl. 10  og hefjast  þá réttarstörf. Ýmislegt er í boði við réttina, t.d. kaffiveitingar, uppboð á hrossum, happadrætti og sölutjald. „Og að sjálfsögðu er réttarball í Víðihlíð um kvöldið. Allir eru velkomnir að taka þátt í þessari hátíð með okkur,“ segir hún að endingu.
/BÞ

Meðfylgjandi myndband sem finna má á YouTube ætti að fá alla til að muna að mæta í réttirnar.

http://youtu.be/fMGBd-roOQU

 

Fleiri fréttir