Stólarnir í undanúrslit eftir frábærar lokamínútur í Síkinu

Liði Tindastóls virðist vera fyrirmunað að vinna örugga sigra en fyrir vikið má segja sem svo að stuðningsmenn Stólanna hafa fengið fullt fyrir peninginn í síðustu leikjum. Leikurinn í kvöld var engin undantekning þó lokatölur, 94-83, gefi kannski annað til kynna. Það var nefnilega hörkuleikur í Síkinu og ungt lið Njarðvíkinga var vel inni í leiknum þangað til Rikki fann fjölina sína þegar rúmar 3 mínútur voru eftir af leiknum.

Leikurinn byrjaði fjörlega og Rikki var kominn með tvær 3ja stiga körfur eftir 90 sekúndur. Hann bætti ekkert við sitt stigaskor fyrr en undir lok leiksins en hvað um það, Stólarnir náðu góðu forskoti, 14-5, en eins og svo oft áður þá gekk heimamönnum illa að halda forystunni, Njarðvíkingar sýndu áræðni og jöfnuðu 17-17 og jafnt var að loknum fyrsta leikhluta, 22-22. Talsvert var um mistök hjá báðum liðum, menn voru svolítið að skrefa, en það voru Stólarnir sem voru með undirtökin og voru yfir 37-30 þegar tæpar 2 mínútur voru til leikhlés. Njarðvíkingar spýttu þá í lófana og gerðu síðustu 9 stig annars leikhluta og voru því komnir yfir, 37-39.

Baginski var ólseigur hjá Njarðvíkingum og skoraði grimmt í leiknum, hann gerði fyrstu fjögur stig þriðja leikhluta og kom gestunum í 37-43. Stólarnir rembdust hvað þeir gátu en gekk illa að stöðva sóknarleik Njarðvíkinga en munurinn þó yfirleitt þetta 2-6 stig. Miller kom nú sterkur inn í lok leikhlutans og gerði 6 stig í röð, breytti stöðunni úr 53-59 í 59-59 en á síðustu sekúndu leikhlutans náðu Njarðvíkingar forystunni þegar Rúnar Ingi Erlingsson skoraði af harðfylgi. Staðan 59-61.

Helgi Margeirs gerði fyrstu 4 stig Stólanna í fjórða leikhluta og jafnaði leikinn 63-63 og Miller kom Stólunum svo yfir 65-63 og héldu heimamenn haus eftir þetta. Leikurinn var engu að síður æsispennandi. Þegar tæpar 5 mínútur voru eftir minnkaði Travis Holm muninn í eitt stig, 71-70, og Cameron Echols jafnaði 73-73 þegar þrjár og hálf mínúta var eftir. Þá kom Allen Stólunum yfir með tveimur vítum og í kjölfarið fylgdu tveir gullfallegir þristar úr horninu frá Rikka eftir góða varnartilburði og hraðaupphlaup Stólanna. Staðan 81-73. Njarðvíkingar náðu að minnka muninn í 84-80 en Luttman tróð með tilþrifum og Allen gerði aðra 3ja stiga körfu sína á skömmum tíma mínútu fyrir leikslok og staðan 89-80 og sigurinn öruggur. Rikki gerði síðan fimmtu 3ja stiga körfu sína í leiknum, í fimm tilraunum, skömmu fyrir leikslok og það skipti litlu þó Njarðvíkingar gerðu síðustu körfu leiksins. Lokatölur 94-83.

Leikurinn var ágæt skemmtun en kannski óþarflega tvísýnn lengstum. Rétt eins og í síðustu leikjum skiptist stigaskorið vel milli leikmanna Tindastóls. Allen og Miller voru báðir með 19 stig í kvöld, Allen með 11 fráköst og Miller 12 stoðsendingar. Risinn Luttman krækti í 12 stig og flest stigin eftir troðslur. Þá var Rikki með 15 stig, öll úr 3ja stiga skotum. Njarðvíkurliðið er bráðefnilegt, mest skipað ungum leikmönnum sem stóðu sig með miklum sóma og fór Baginski þar fremstur í flokki.

Með sigrinum komst Tindastóll því í undanúrslit í Powerade-bikarnum og verður spennandi að fylgjast með hvaða mótherja liðið fær.

Stig Tindastóls: Allen 19, Miller 19, Rikki 15, Luttman 12, Helgi Rafn 12, Þröstur Leó 8, Helgi Freyr 4, Hreinsi 3 og Svabbi 2.

Fleiri fréttir