Stólastelpur glutruðu niður tveggja marka forystu

Tindastóll og ÍR áttust við á Sauðárkróksvelli í Íslandsmótinu í 1. deild kvenna í dag en fyrir fram var ljóst að um hörku leik yrði að ræða þar sem liðin eru á svipuðum stað á stigatöflunni. Tindastóll var sæti ofar með eins stigs forskot og breyttist ekki í leikslok þar sem leikurinn endaði með jafntefli 2-2.

Það var Leslie Briggs sem opnaði markareikning Stólanna strax á 13. mínútu og Guðný Þóra Guðnadóttir bætti öðru marki við tuttugu mínútum síðar og stólarnir leiddu 2-0 í hálfleik eftir að hafa haft undirtökin í leiknum. Í þeim síðari komu sunnanstúlkur einbeittar til leiks og snéru taflinu sér í vil og náðu að laga stöðu sína á 70. mínútu og var þar á ferð Eva Dröfn Ólafsdóttir. Rétt áður en dómarinn flautaði leikinn af náði Skagfirðingurinn í liði ÍR, Guðrún Ósk Tryggvadóttir, að setja boltann í net gestgjafanna og þar með jafna leikinn.

Tindastóll situr sem fyrr í 6. sæti og hefur nú fengið 15 stig í 14 leikjum.

Næsti leikur stelpnanna verður nk. miðvikudag þegar efsta lið riðilsins, Fylkir, kemur í heimsókn en síðasti leikurinn verður svo á sunnudag en þá mæta BÍ/Bolungarvík á Krókinn.

HÉR er hægt að sjá stöðuna í riðlinum.

.

Fleiri fréttir