Stólastúlkur komnar í 2. sæti í 1.deild

Tindastóll lagði lið Breiðabliks í 1. deild kvenna í körfuknattleik á föstudaginn. Var leikurinn mikil skemmtun og léku Stólastelpur eins og enginn væri morgundagurinn. Voru skagfirsku stelpurnar að sýna sinn allra besta leik í vetur og hefur liðið unga verið að bæta sig gríðarlega á milli allra síðustu leikja, segir á heimasíðu Tindastóls.

Breiðablik kom ósigrað í Síkið og  ætluðu Blikastelpur líklega að halda því svoleiðis, en sú varð ekki raunin. Gríðarlegur baráttuvilji og svakalegur varnarleikur skópu þennan sigur fyrir þær skagfirsku. Þótt að leikurinn hafi endað 61-51 gefur það ekki raunverulega mynd af leiknum, því Tindastólsstúlkur voru á tímabili í leiknum komnar 20 stig yfir.

Stigaskor gærdagsins.. Tas 20, Þóranna 15, Bríet 12. Linda 8, Ísabella 4, Erna 2.

Næsti leikur hjá stelpunum er útileikur gegn FSu 26. janúar og verður gaman að sjá hvort þær fylgji þessu ekki sterkt eftir.

Fleiri fréttir