Stólastúlkur lögðu Hauka í Hafnarfirði

Stelpurnar í Tindastóli gerðu góða ferð í Hafnarfjörðinn sl. föstudagskvöld er þær tókust á við stöllur sínar í Haukum. Þær sunnanstelpur voru fyrirfram taldar sigurstranglegri í leiknum en norðanstúlkur ætluðu ekki að efa þeim neitt og sýndu sinn besta leik á tímabilinu og unnu sannfærandi.

Það var ekki fyrr en á 40. mínútu að Katrín Klara Emilsdóttir skoraði fyrsta mark leiksins fyrir gestgjafana eftir að þeir höfðu fengið óbeina aukaspyrnu vegna sendingar Stólanna til markvarðar sem tók boltann upp. Dómurinn mjög umdeildur þar sem Norðanliðið vildi meina að ekki hefði verið um sendingu til baka að ræða heldur barst boltinn til markvarðar eftir baráttu liðsmanna beggja liðanna. Engu að síður fór boltinn í netið og Haukar komnir yfir og staðan 1-0 í hálfleik og Gaui þjálfari kominn með gult spjald.

Í seinni hálfleik hélt sama barátta áfram, Stólastúlkur betri aðilinn í leiknum og staðráðnar að laga stöðuna. Það gerðu þær bandarísku, Leslie Briggs sem skoraði á 60. mínútu og jafnaði stöðuna og svo Carolyn Polcari níu mínútum síðar og kom Tindastóli yfir 2-1. Sú staða hélst allt til loka og Stólastúlkur fögnuðu kærkomnum sigri yfir erfiðum andstæðingi.

Tindastóll vippaði sér með sigrinum úr botnsætinu upp í það sjötta og sitja þar með 5 stig einu stigi á eftir Haukum.

Næsti leikur Tindastóls verður næsta miðvikudag á móti Álftanesi á Sauðárkróksvelli og þá eru allir hvattir til að mæta á völlinn og styðja við bakið á stúlkunum.

Fleiri fréttir