Stór hópur úr Skagafirði á Gautaborgarleikana í frjálsíþróttum
Heimsleikar unglinga, eða Gautaborgarleikarnir eins og þeir eru oftast kallaðir hér heima, fara fram á Ullevi-leikvanginum í Gautaborg dagana 8. - 10. júlí. Þetta er eitt fjölmennasta frjálsíþróttamót unglinga sem haldið er í heiminum, en keppt er í aldursflokkum frá 12 ára aldri. Þrátt fyrir nafnið er einnig keppt í flokkum fullorðinna karla og kvenna. Eins og á undanförnum árum fara nokkrir hópar Íslendinga á mótið.
Frá UMSS fara 23 keppendur, en með fylgdarliði eru alls 44 í hópnum. Hópurinn flýgur utan í dag kl. 15:45. Gist verður á Kviberg farfuglaheimilinu, sem er í um10 mín. fjarlægð frá vellinum með sporvagni.
Á fimmtudeginum verður létt æfing, en á föstudeginum hefst keppnin og stendur fram á sunnudag. Á mánudeginum verður farið í vatnaleikjagarðinn Skara Sommerland, sem er í um 1,5 klst. fjarlægð frá Gautaborg, og dvalið þar allan daginn. Þriðjudagur og fram eftir miðvikudegi verða notaðir í skoðunarferðir, en heim verður haldið að kvöldi miðvikudagsins 13. júlí kl. 21:00.
Allar upplýsingar má fá á heimasíðu mótsins: www.vuspelen.se.
/Tindastóll.is