Stórleikur hjá drengjaflokki Tindastóls í dag

Það er skammt stórra högga á milli hjá ungum og upprennandi leikmönnum Tindastóls í körfunni nú um helgina. Í dag, laugardaginn 12. október kl.15, tekur drengjaflokkur á móti liði Njarðvíkur í íþróttahúsinu á Sauðárkróki.

Margir strákanna í drengjaflokki, sem eru 17-18 ára, voru einmitt á fullri ferð í Síkinu í gærkvöldi þegar meistaraflokkur tók á móti liði Augnabliks. Fólk er hvatt til að mæta og styðja strákana.

Á sunnudaginn heldur 8.flokkur stúlkna til Stykkishólms og spilar í B-riðli íslandsmótsins. Um er að ræða fyrsta mót vetrarins og eru andstæðingarnir ÍR, Fjölnir og heimamenn í Snæfelli.

Fleiri fréttir