Stórleikur í Síkinu í kvöld
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
26.02.2015
kl. 13.30
Meistaraflokkur karla í körfu tekur á móti Grindavík í Dominos-deildinni kvöld kl. 19:15. „Grindavík hefur verið á mikilli siglingu undanfarið og má því búast við hörkuleik,“ segir á heimasíðu Tindastóls.
Tindastóll er í öðru sæti deildarinnar með 28 stig en Grindavík er í sjötta til sjöunda sæti með 18 stig.
„Mætum og styðjum við bakið á okkar mönnum,“ segir loks á vefnum.