Styrkveitingar úr Menningarsjóði Sparisjóðs Húnaþings vestra
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla
22.02.2019
kl. 11.17
Nýlega var úthlutað úr Menningarsjóði Sparisjóðs Vestur-Húnavatnssýslu en auglýst var eftir umsóknum um menningarstyrki úr sjóðnum í janúar sl. Alls bárust 25 umsóknir upp á samanlagt 28 milljónir króna og ákvað stjórnin að veita styrki að upphæð 10.700.000 kr. til 16 aðila. Hæsti styrkurinn, sem nemur 3,3 milljónum króna, kom í hlut Félagsheimilisins á Hvammstanga vegna endurnýjunar og uppfærslu ljósabúnaðar og hljóðkerfis fyrir húsið.
Styrkhafar og verkefni eru:
- Hollvinasamtök Efra-Núpskirkju. 300.000 kr.
- Lagfæring á Efra-Núpskirkju í Miðfirði. - Sóknarnefnd Prestbakkakirkju. 350.000 kr.
- Styrkur vegna orgelkaupa. - Leikflokkur Húnaþings vestra. 650.000 kr.
- Söngleikurinn Hárið. - Verslunarminjasafnið Gallerí Bardúsa. 400.000 kr.
- Rekstrarstyrkur. - Lionsklúbburinn Bjarmi. 850.000 kr.
- Söguskilti um Bangsa og varðveisla Bangsabáts. - Menningarfélag Húnaþings vestra. 800.000 kr.
- Söngvarakeppni Húnaþings vestra 2019.
- Standsetning Menningarhúss.
- Kvikmyndasýningar í Félagsheimili Hvammstanga. - Félagsheimilið Hvammstanga. 3.300.000 kr.
- Endurnýjun og uppfærsla ljósabúnaðar 2. þrep.
- Hljóðkerfi fyrir Félagsheimilið Hvammstanga. - Jólahúnar. 250.000 kr.
- Jólatónleikar Jólahúna 2019. - Selasetur Íslands. 300.000 kr.
- Nútímavæðing Selasafnsins. - Unglist í Húnaþingi. 750.000 kr.
- Eldur í Húnaþingi 2019. - Gudrun Kloes. 200.000 kr.
- Saga Grettis Ásmundarsonar í tíu myndum. - Birta Þórhallsdóttir og Sigurvald Ívar Helgason. 650.000 kr.
- Hljóðritasafn, Holt menningarsetur. - Handbendi Brúðuleikhús ehf. 500.000 kr.
- Handbendi Brúðuleikhús. - Karlakórinn Lóuþrælar. 600.000 kr.
- Vor- og jólatónleikar 2019. - Félag áhugamanna um endurbyggingu Riishúss. 600.000 kr.
- Uppsetning Sögusýningar í Riishúsi Borðeyri. - Hollvinafélag Víðidalstunguheiðar. 200.000 kr.
- Merking eyðibýla á Víðidalstunguheiði.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.