Styrkveitingar úr Rannsóknasjóði

Stjórn Rannsóknasjóðs hefur lokið við úthlutun til nýrra rannsóknaverkefna fyrir árið 2014. Alls bárust 214 umsóknir um verkefnastyrki og hlutu 52 þeirra loforð um styrk, eða rúm 24%.

Verkefnunum er skipt upp í fimm flokka (m.v. fagráð), og voru starfsmenn Háskólans á Hólum aðalumsækjendur að þremur af þeim tíu verkefnum er hljóta styrk í flokknum náttúru- og umhverfisvísindi. Samtals hljóta þessi þrjú verkefni loforð fyrir hátt í 27 milljónir króna.

Hér má nálgast lista um verkefnin sem fengu styrkloforð. Hólaskóli segir frá þessu.

Fleiri fréttir