Styttist í útgáfutónleika Multi musica
Laugardagskvöldið 17. september nk. verða útgáfutónleikar Multi Musica hópsins í Salnum Kópavogi í tilefni af útgáfu disksins Unus Mundus. Á diskinum eru 13 lög frá 11 löndum, farið er í ferðalag í fylgd tónlistar frá Mexíkó, Chilé, Kúbu, Brasilíu, Suður-Afríku, Keníu, Indlandi, Rúmeníu, Spáni, Grikklandi og endar ferðin á Íslandi.
Hópinn skipa níu tónlistarmenn úr Skagafirði en diskurinn er gefinn út í samstarfi við Soroptimistaklúbb Skagafjarðar og Vini Kenía en hluti af ágóða disksins rennur til uppbyggingu Lakeview skólans í Maeri við Viktorívatnið í Kenýa.
Allir þeir sem tækifæri hafa á að mæta í Salinn á laugardagskvöldið ættu ekki að láta þessa tónleika fara fram hjá sér.
Meðfylgjandi er lag sem gert hefur verið aðgengilegt á YouTube og er af diskinum Unus mundus. Það er frá Mexíkó og er um fræga sósu úr súkkulaði og chili .. ef grannt er hlustað má heyra uppskriftina í viðlaginu.
http://www.youtube.com/watch?v=W6fdKaAEDzg