Sumarlestur í Varmahlíðarskóla
Sumarið 2013 er í tíunda sinn boðið upp á sumarlestur í Varmahlíðarskóla. Er hann ætlaður nemendum í 1.-5. bekk og markmiðið að hvetja yngri nemendurna til að lesa yfir sumartímann því reynslan hefur sýnt að börnum sem eru að læra að lesa fer mjög oft aftur í lestri á sumrin.
Nemendur fá kynningarbréf og þátttökutilkynningu, þar sem foreldrar eru beðnir að vera með í ráðum og hvetja börn sín til að taka þátt, auk þess að hjálpa þeim að setja sér raunhæf markmið um hve mikið þeir ætla að lesa.
Þátttaka hefur jafnan verið góð og í sumar eru um 50 nemendur skráðir til leiks. Þess má geta að í fyrrasumar lásu nemendur um 80.000 síður eða 1.670 að meðaltali.
Þeir sem ljúka sumarlestrinum fá viðurkenningarskjöl, litla gjöf og gjafabréf fyrir ís að eigin vali sem K.S. Varmahlíð hefur verið svo vinsamlegt að gefa. Einnig eru þeir bekkir sem mest lesa verðlaunaðir sérstaklega. Fá þeir gjafabréf fyrir peningaupphæð sem notast á í samráði við bekkjarkennara.
Bókasafnið er opið hálfsmánaðarlega á sumrin, tvo tíma í senn, alls fimm sinnum og er opnunartíminn auglýstur á heimasíðu skólans. Aðsókn hefur verið mjög góð og nemendum fylgja foreldrar og systkini sem einnig fá bækur að láni.
Þess má að lokum geta að þetta verkefni hefur þrisvar sinnum fengið styrk úr Sáttmálasjóði K.S.