Sundæfingar Tindastóls að hefjast
Sundæfingar hjá sunddeild Tindastóls á Sauðárkróki eru nú að hefjast en fyrsta æfingin verður í sundlaug Sauðárkróks 16. september. Þjálfarar verða Ragna Hrund Hjartardóttir og Sunneva Jónsdóttir og auk þess mun Ragnheiður Runólfsdóttir yfirþjálfari sundfélagsins hjá Óðni á Akureyri kíkja við hjá okkur í vetur.
Boðið er upp á fríar sundæfingar í september. Í tilkynningu frá sunddeild Tindastóls eru nýjir krakkar og unglingar og eldri sundkappar boðin velkomin.