Sundlaugavörður bjargar barni frá drukknun
Stúlkubarn var hætt komið í Sundlauginni á Hofsósi síðdegis í gær þegar hún laumaðist frá foreldri sínu og í djúpu laugina. Sundlaugavörður sá barnið í erfiðleikum fyrir miðri laug og stakk sér til sunds.
Þónokkur fjöldi fólks var í lauginni þegar atvikið átti sér stað í gær um kl. 17:30. „Þegar ég sá hana átti hún í stökustu erfiðleikum að halda sér á yfirborðinu,“ segir Ævar Jóhannsson sundlaugavörður þegar Feykir hafði samband við hann um málið.
Stúlkan, um 5-6 ára gömul, hafði laumast frá foreldri sínu á meðan það var að sinna öðru barni. Eftir að hún jafnaði sig var hún höfð aðeins lengur í lauginni en að sögn Ævars vilja börn, sem lenda í erfiðleikum og eru kippt beint úr lauginni, verða hrædd við að fara aftur í sund.
„Þetta fór eins vel og hægt var,“ sagði Ævar en samskonar atvik hafa átt sér stað í lauginni en þetta var í fyrsta sinn sem hann hefur þurft að stinga sér á eftir barni. Fram til þessa hafa þau verið nær bakkanum og því verið hægt að kippa í þau.
Ævar segir nauðsynlegt fyrir alla að vera vel á verði þegar börn eru annars vegar; sundlaugaverðir jafnt sem foreldrar og aðrir sundlaugagestir.