Sunna Líf og Tinna Björk eru fulltrúar FNV í söngkeppni framhaldsskólanna

Tvær yngismeyjar á Sauðárkróki, þær Sunna Líf Óskarsdóttir og Tinna Björk Ingvarsdóttir, eru fulltrúar FNV í Söngkeppni sem fram fer í Hofi á Akureyri á laugardaginn. Þær hafa sungið frá unga aldri og sigruðu undankeppni FNV í febrúar. Feykir hafði samband við þær stöllur í morgun og spurði þær út í keppnina.

Hvenær byrjuðum þið að syngja?

Við byrjuðum báðar mjög ungar að syngja. Við vorum t.d í hljómsveit með Önnu Jónu sem hét NNA, útaf lokastöfunum í nöfnunum okkar. Við höfum verið duglegar að dunda okkur í tónlist alveg síðan.

Höfðuð þið sungið saman opinberlega áður en þið tókuð þátt í keppninni?

Já, við höfðum sungið saman, t.d á Samfés, en það eru hinsvegar nokkur ár síðan við sungum saman síðast.

Hvaða lag ætlið þið að taka og af hverju völduð þið þetta lag?

Við tökum lagið I See Fire vegna þess að okkur finnst það skemmtilegt lag og gaman að syngja það.

Gætuð þið hugsað ykkur að verða söngkonur í framtíðinni?

Við gerum alveg klárlega ráð fyrir einhverri tónlist í framtíðinni en við erum ekki viss um að við störfum sem söngkonur samt.

Hver er uppáhaldstónlistarmaður ykkar eða fyrirmynd í tónlistinni?

Það er hann Bubbi Morthens. Hann er A-klassa maður.

Eruð þið búnar að nota verkfallið vel til að undirbúa ykkur undir keppnina?

Við viðurkennum það að við erum ekki búnar að nota verkfallið nógu vel til að æfa og undirbúa okkur. En síðustu vikur erum við búnar að æfa með henni yndislegu Sigurlaugu Vordísi og hún er búin að hjálpa okkur að leggja lokahönd á lagið.

Eruð þið bjartsýnar á að komast áfram í undankeppninni?

Maður verður nú að vera bjartsýnn á allt svona! Hin atriðin eru reyndar alveg mjööög flott, en það væri ótrúlega skemmtilegt að vera fyrstar til að vinna aðalkeppnina frá FNV.

Hvað verður ykkar fyrsta verk ef þið vinnið keppnina?

Það fyrsta sem við myndum gera væri að fagna því með að fara saman út að borða.

Fleiri fréttir