“Sunnan við garðinn hennar mömmu”
Listaflóð á vígaslóð er heitið á menningardegi sem haldinn verður laugardaginn 16. júlí á Syðstu-Grund í Blönduhlíð í Skagafirði en þar er kominn vísir að ferðaþjónustu enda staðsetning jarðarinnar afskaplega vel í sveit sett. Í landi Syðstu-Grundar var Haugsnesbardagi háður árið 1246 en sá bardagi var ein af stórorrustum Sturlungaaldar og mannskæðasti bardagi sem háður hefur verið á Íslandi.
-Sú hugmynd kom upp í fyrrasumar að gaman væri að halda litla sumarhátíð á Syðstu-Grund og setja þar með mark sitt á þá miklu menningarflóru sem Skagafjörður hefur upp á bjóða. Í framtíðinni er svo hugmyndin að þessi sumarhátíð geti undið upp á sig og fyrirhuguð er menningarhelgi á næsta ári þar sem settar verða upp miðaldabúðir og heimafólk mun halda uppi menningardagskrá, segir Sveinn Arnar Sæmundsson frá Syðstu-Grund sem nú er organisti og kórstjóri á Akranesi.
“Réttur verður settur kl. 13” og mun dagskráin verða opin fram eftir degi. Lítill garðmarkaður þar sem handverksfólk og annað listafólk sýnir og kynnir varning sinn og hægt er að gera góð kaup ef fólk vill. Lilla á Grund er búinn að baka mikið góðgæti og Sæmundur mun standa í dyrum og bjóða til samsætis við eldhúsborðið. Sunnan við garðinn stendur Litla-Grund og þar gefst fólki kostur á að líta vel samsett smáhýsi og kynnast nánar tilhögun þess og smíði.
Félagar úr Víkingafélaginu Hringhorna á Akranesi mæta til leiks og sýna leiki fornmanna og bjóða gestum í leik, börnum sem fullorðnum. Sigurður Hansen í Kringlumýri býður göngufráum í leiðsögn á Haugsnesgrundir. Að endingu verða svo tjaldtónleikarnir “Sunnan við garðinn hennar mömmu” þar sem fram koma Grundafólk, Jón Þorsteinn harmonikkuleikari og Tindatríóið ásamt Arnari á Grund. Tindtríóið skipa feðgarnir Atli Guðlaugsson, Guðlaugur Atlason og Bjarni Atlason en Bjarni er einn efnilegasti “alhliða” söngvari landsins og hefur hrifið marga með söng sínum.