Sveinn Guðmundsson látinn

Sveinn Guðmundsson heiðursborgari á Sauðárkróki lést í gær 91 árs að aldri. Hans er einkum minnst fyrir brautryðjendastarf á sviði hrossaræktar í landinu enda má rekja flest af bestu kynbótahrossum landsins til hans ræktunar. Fyrir störf sín að ræktun íslenska hestsins var Sveinn sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku Fálkaorðu og Landssambands hestamannafélaga gerði hann að heiðursfélaga fyrir störf sín í þágu íslenska hestsins.

Þá var Sveinn formaður hestamannafélagsins Léttfeta í áratugi og gerður að heiðursfélaga þar eftir að hann lét af störfum en að félagsmálum hestamanna í Skagafirði var Sveinn mikilsvirtur. Þá veitti Rótarýsamtökin Sveini viðurkenningu fyrir störf sín í hrossarækt.

Árið 1997 var Sveinn gerður að heiðursborgara Sauðárkróks en þar bjó hann alla sína ævi, fæddur 3. ágúst 1922, sonur Guðmundar Sveinssonar og Dýrleifar Árnadóttur.

Fleiri fréttir