Sveitakeppni Golfsambands Íslands á Sauðárkróki um helgina
Nú um helgina verður haldin sveitakeppni GSÍ á Hlíðarendavelli. Sex lið etja þar kappi um sæti í efstu deild. Þar á meðal er sveit frá Golfklúbbi Sauðárkróks en hana skipa Árný Lilja Árnadóttir, Dagbjört Hermundardóttir, Ingibjörg Guðjónsdóttir, Ragnheiður Matthíasdóttir, Sigríður Elín Þórðardóttir og Sigríður Eygló Unnarsdóttir. Kvennasveit GSS hefur verið á flakki milli fyrstu og annarar deildar undanfarin ár og vonast skagfirskri kylfingar eftir því að sveitin verði í öðru af tveimur efstu sætunum og fari þar með upp í hóp þeirra bestu á landinu.
Á sama tíma verður karlasveit félagsins í baráttu í fjórðu deild, en liðið féll úr þeirri þriðju síðastliðið ár og er stefnan sett á sigur. Sveit GSS skipa þeir Arnar Geir Hjartarson, Brynjar Guðmundsson, Ingvi Þór Óskarsson, Jóhann Örn Bjarkason og Oddur Valsson. Úrslit verða birt um leið og þau berast á www.gss.is .
Tilvalið er að líta í kaffi að Hlíðarenda um helgina og sjá og styðja við bakið á kvensveitinni.