Sveitakeppni GSÍ
Sveitakeppni GSÍ er nú lokið. Karlasveit GSS keppti í fjórðu deild, sem fram fór á Sauðárkróki. Eftir harða baráttu sigraði sveit Dalvíkinga, Selfyssingar urðu í öðru sæti en sveit Sauðárkróks í því þriðja. Dalvíkingar og sveit Golfklúbbs Selfoss keppa því í þriðju deild að ári en Sauðkrækingar verða áfram í fjórðu deild. Viðureign GSS og Selfoss féll ekki með okkar mönnum en okkar menn stóðu sig með mikilli prýði og luku gestir lofsorði á Hlíðarendavöll og framkvæmd mótsins.
Úrslit urðu annars þessi.
1. Golfklúbbur Dalvíkur
2. Golfklúbbur Selfoss
3. Golfklúbbur Sauðárkróks
4. Golfklúbbur Bakkakots
5. Golfklúbburinn Geysir
6. Golfklúbbur Þorlákshafnar
7. Golfklúbburinn Þverá (fellur í 5. deild)
8. Golfklúbburinn Sandgerði (fellur í 5. deild)
Sveit Selfoss í 2. sæti. Mynd: GSS.is
Karlasveit GSS í 3. sæti. Mynd: GSS.is
Kvennasveitin keppti í efstu deild og atti þar kappi við bestu kvenkylfinga landsins. Þrátt fyrir sigur í síðustu umferð gegn Golfklúbbinum Oddi endaði sveitin í 7. sæti og féll í aðra deild. Stelpurnar stóðu sig með prýði og þurfa ekki að bæta sig mikið til að halda sér meðalþeirra bestu. Golfklúbbur Sauðárkróks segir frá þessu.