Sveitarfélagið Skagafjörður hlýtur gæðaviðurkenningu menntaáætlunar Evrópusambandsins

Að byggja brú milli leik- og grunnskóla, verkefni Sveitarfélagsins Skagafjarðar, hlaut í gær gæðaviðurkenningu menntaáætlunar Evrópusambandsins við hátíðlega athöfn Ásmundarsafni. Tíu verkefni, sem hafa verið styrkt af áætluninni, hljóta viðurkenningarnar í ár. Verkefnin eiga það sammerkt að hafa sýnt fram á nýsköpun og nýbreytni í menntun, stuðlað að þátttöku fjölbreyttra hagsmunahópa í alþjóðasamstarfi og haft áhrif á skólastarf einstakra stofnana sem og víðtækari áhrif í skólasamfélaginu.
Á vefnum Erasmusplus.is segir að Sveitarfélagið Skagafjörður fái viðurkenningu fyrir að stýra velheppnuðu svæðasamstarfi þar sem sérstök áhersla var lögð á aðferðir til að tryggja að skilin á milli tveggja skólastiga, leik- og grunnskóla, verði sem minnst. Niðurstöður verkefnisins nýtast áfram innan sveitarfélagsins og hafa m.a. verið birtar í Nordic Educational Magazine í samstarfi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Það var Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, sem veitti viðurkenningarnar sem eru í formi myndverka hönnuð voru af 15 nemendum á öðru ári í teiknideild í Myndlistarskóla Reykjavíkur.
Verkefnin sem hljóta gæðaviðurkenningarnar 2015 eru:
eTwinning
- Hvað finnum við undir fótum okkar? Heilsuleikskólinn Krókur, Grindavík
- Lesum heiminn, Leikskólinn Holt, Reykjanesbær
Erasmus+
- Sterkari saman, Lundarskóli, Akureyri
- Að byggja brú milli leik- og grunnskóla, Sveitarfélagið Skagafjörður
- Íslenskir iðnnemar í vinnustaðanámi í Evrópu, Iðan fræðslusetur
- Starfsfóstri, Verkmenntaskólinn á Akureyri
- Sumarskóli Rannsóknarseturs um smáríki, Háskóli Íslands
- Erasmus stúdenta- og starfsmannaskipti, Listaháskóli Íslands
- Fegurð hannyrðanna, Þingborg ullarvinnsla
- Art-is, Sólheimar
Hér má sjá nánari upplýsingar um Að byggja brú milli leik- og grunnskóla, verkefni Sveitarfélagsins Skagafjarðar.