Sveitasæla 2013
Landbúnaðar og bændahátíðin Sveitasæla verður haldin í Reiðhöllinni Svaðastaðir á Sauðárkróki, laugardaginn 24. ágúst nk. Sýningin er opin frá 10:00 – 19:00 og er aðgangur ókeypis. Veitingasala (kaffihús og matsala) er allan daginn á meðan sýningu stendur. Að sýningu lokinni verður kvöldvaka í Reiðhöllinni þar sem m.a. verður boðið upp á kjötsúpu í boði Ólafshúss og Kjötafurðarstöðvar KS.
Dagskrá sýningarinnar
10:00 Sýningarsvæði opnar
11:00 Setning
-Tónlistaratriði
-Ásta Björg Pálmadóttir, sveitarstjóri Sveitarfélagsins Skagafjarðar
-Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands
-Sigurður Ingi Jóhannsson, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra
11:30 Tóti í Keldudal lætur dæluna ganga
-Sýning á vökvunarbúnaði
11:45 Smalahundasýning – inni
12:30 Hrútasýning
13:00 Smalahundasýning – úti
13:15 Hæfileikakeppni vélamannsins
-Skráning á staðnum
14:00 Kálfasýning
14:30 Rúningur og ullarvinnsla
15:00 Smalahundasýning
15:30 Leitin að nálinni í heystakknum
-Hver er fljótastur að finna heklunál í heystakk
- Keppni á tíma fyrir 13 ára og yngri. Skráning á staðnum.
16:00 Klaufskurður á kúm
16:30 Smalahundasýning – úti
17:00 Tóti í Keldudal lætur dæluna ganga
17:30 Húsdýrum gefið, mjaltir og almenn umhirða
Grill og kvöldvaka í Reiðhöllinni Svaðastaðir
19:30 Kvöldvaka
-Agnar Gunnarsson og Ingimar Jónsson stjórna skemmtidagskrá
-Bændafitness
-Keppni á milli búgreinafélaga
-Fjölbreytt söng- og skemmtiatriði
Opin bú í Skagafirði sunnudaginn 25. ágúst kl. 11 – 16
-Hrossaræktarbúið Vatnleysu í Viðvíkursveit
-Loðdýrabúið Syðra-Skörðugili á Langholti
-Skógræktarbýlið Silfrastöðum í Blönduhlíð
-Kúabúið Réttarholti í Blönduhlíð
Þá er Sögusetur íslenska hestsins á Hólum í Hjaltadal opið frá kl. 10 – 18 laugardag og sunnudag.