Sveitasæla um aðra helgi
Sveitasæla 2013, landbúnaðarsýning og bændahátíð, verður haldin laugardaginn 24. ágúst n.k. í Reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki. Sýningin verður með heðfðbundnu sniði, þar koma saman bændur og búalið, ásamt vinnuvélasýnendum og handverksfólki, sýna sig og sjá aðra og skemmta sér saman.
Við opnun sýningarinnar munu Ásta Pálmadóttir sveitastjóri í Skagafirði, Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson formaður Bændasamtaka Íslands og Sigurður Ingi Jóhannsson, landbúnaðarráðherra, flytja ávörp.
Þegar dagskrá lýkur um kvöldið verður blásið til kvöldvöku þar sem margt verður til skemmtunar, en venju samkvæmt er það Bændafitnessið sem mun væntanlega vekja mesta lukku, en þar reyna sprækir bændur með sér í þrautabraut á tíma. Stjórnandi Bændafitnessins að þessu sinni, verður hinn landskunni landbúnaðarframámaður Guðmundur Hallgrímsson frá Hvanneyri.