Sveitastjóri óskar eftir styrkbeðinum
Skúli Þórðarson, sveitastjóri í Húnaþingi vestra, bendir félagsasamtökum og einstaklingum í Húnaþingi vestra sem hyggjast sækja um styrki frá sveitarfélaginu til einstakra verkefna á næsta ári að senda skriflegar umsóknir til sveitastjóra fyrir 15. október.
Í tilkynningu frá sveitastjóra þess efnis segir að nú sé Sveitastjórn Húnaþings vestra að vinna að gerð fjárhagsáætlunar fyrir aðalsjóð og fyrirtæki sveitarfélagsins fyrir árið 2011.