Sverrir Bergmann og Brynjar Elefsen leiða lokahóf körfunnar
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
18.04.2014
kl. 13.27
Lokahóf körfuknattleiksdeildar Tindastóls verður haldið á Kaffi Krók í kvöld, föstudaginn langa. „Gullbarkinn og sjarmatröllið Sverrir Bergmann verður veislustjóri ásamt Brynjari Elefsen á lokahófinu. Endilega að fjölmenna á þessa frábæru skemmtun og njóta góðs kvölds með okkur,“ segir á heimasíðu Tindastóls.
Að sögn Stefáns Jónssonar formanns körfuknattleiksdeildarinnar verður boðið upp á fordrykk, girnilegt matarhlaðborði og óvæntan eftirrétt.
Húsið opnar kl. 20 og miðaverð er 3500 kr. Miðapantanir fara fram í gegnum netfangið karfa@tindastoll.is. Nánari upplýsingar í síma 868 2355.