Svf. Skagafjörður auglýsir eftir mannauðsstjóra

Sveitarfélagið Skagafjörður auglýsir eftir mannauðsstjóra en hann starfar á stjórnsýslu- og fjármálasviði. Sigríður Arndís Jóhannsdóttir fráfarandi mannauðsstjóri hefur störf hjá velferðarsviði Reykjavíkurborgar með vorinu en að sögn Sigríðar ætlar hún láta til sín taka í mörgum spennandi verkefnum í miðborginni.

Í starfi mannauðsstjóra felst m.a. þróun- og viðhald mannauðsstefnu, aðstoð og ráðgjöf til stjórnenda og umsjón og þróun starfsmannahandbókar. Samskipti við stéttarfélög, framkvæmd kjarasamninga, réttindamál og aðbúnaður. Einnig umsjón með sí- og endurmenntun á vegum sveitarfélagsins og önnur tilfallandi verkefni.

Gerð er krafa um háskólamenntun sem nýtist í starfi, stjórnunarreynslu, framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum. Umsækjandi þarf að vera sjálfstæður í störfum, með faglegan metnað, frumkvæði og góða skipulagshæfni. Jafnframt með hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku.

Ráðið verður í starfið sem fyrst og er umsóknafrestur til 10. mars nk. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Sveitarfélagsins.

Fleiri fréttir