Sýknaður af nauðgun

Fjölskipaður Héraðsdómur Norðurlands vestra hefur sýknað 23 ára karlmann sem ákærður var fyrir að þvinga tvítuga stúlku með ofbeldi til samræðis í heimahúsi á Sauðárkróki í júní 2012. Á Mbl.is segir að stúlkan hafi meðal annars sagt að hún hafi verið beitt harðræði í nefnt sinn en engir áverkar fundust á henni og leit dómurinn til þess.

„Í niðurstöðu dómsins segir að maðurinn og konan séu ein til frásagnar um það sem gerðist umrætt sinn. Maðurinn hafi eindregið neitað sök og sagði samfarirnar hafa verið með samþykki konunnar. Taldi dómurinn ekkert hafa komið fram sem dragi úr trúverðugleika framburðar hans.

Hvað varðar framburð konunnar segir dómurinn: „Við mat á trúverðugleika framburðarins verður þó ekki framhjá því litið að miðað við það harðræði sem stúlkan segir ákærða hafa beitt sig hefði hún átt að bera þess einhver merki.“ Við réttarlæknisfræðilega rannsókn fundust hins vegar engir áverkar á konunni,“ segir á Mbl.is og ennfremur að að engin hliðræn sönnunargögn renni stoðum undir það að maðurinn hafi framið það brot sem hann var sakaður um og þótt frásagnir vitna séu á þá leið að konan hafi verið hágrátandi og miður sín þegar hún kom frá manninum geti það eitt og sér ekki leitt til sakfellingar.

Allur sakarkostnaður, þar með talin málsvarnarlaun og þóknun réttargæslumanns, greiðast úr ríkissjóði, samtals um 1,6 milljónir króna.

Fleiri fréttir