Sýningin „Ár og kýr“ – 365 kúamyndir
Allar 365 kúamyndirnar hans Jóns Eiríkssonar á Búrfelli í Húnaþingi vestra eru komnar heilar á húfi í Grettisbólið á Laugarbakka og verða þar til sýnis fram yfir Verslunarmannahelgina.
Landsvirkjun á verkið en lánar það endurgjaldslaust heim í héraðið. Wool Factory Shop Kidka og sláturhúsið SKVH á Hvammstanga styrkja flutninginn. Opnunartími í Grettisbóli er mán. til laugard. frá kl. 13 til 18. Verið hjartanlega velkomin til að skoða þessa sýningu, aðgangur er ókeypis.
Jón Eiríksson er bóndi á Búrfelli og býr við kindur, hross og kýr. Hann ásetti sig að mála eina mynd af kúum á hverjum degi árið 2003 og stóðst við það, hvað sem á gekk. Myndirnar hans eru einstaklega skemmtilegar og litríkar, og framsetningin er það einnig: Heildarverkið er komið fyrir í 12 stólpum sem hver geimir einn mánaðarverk af kúamyndum. Þannig gefst áhorfendum tækifæri til að finna „sína“ daga eins og afmælis- eða brúðkaupsdaginn.
Í Grettisbóli er rekin sveitamarkaður með matvæli og handverk úr héraði. Með örfáum undantekningum eru allar vörur búnar til í héraði. Handverk úr hófi, horni, hrosshári og beini er unnið úr hráefni sem fellur til í sláturhúsi á Hvammstanga og er unnið frá grunni, sem í sumum tilvikum er áralangt ferli. Vöruúrvalið er mjög fjölbreytt og hefur skírskotun til forna vinnubragða. Krakkahorn með gamaldags leikföngum og víkingabúningum er einnig í Grettisbóli. Börnum finnst gaman að setja sig í spór víkingakrakka og sveifla trésverði eða „elda“ graut.
Grettisgarður er við Grettisból en þar gefst gestum tækifæri til að æfa sig í bogfimi, snæða nestið sitt í stórum og skjólsælum steinhring og jafnvel kveikja í langeld og segja sögur.
Það er nóg að gera í Grettisbóli!
/Fréttatilkynning