Synti frá Drangey í leiðinda veðri

Lögreglumaðurinn Jón Kristinn Þórsson synti frá Drangey í gærkvöldi í leiðinda veðri og í land. Jón Kristinn er í sérsveit lögreglunnar og er fjórði lögreglumaðurinn sem syndir úr Drangey í Skagafirði.

Sagt var frá þessu á Facebook síðu Drangeyjarferða og tók sundið alls þrjá klukkutíma en leiðin frá Drangey og í land er 7 kílómetrar.

Fleiri fréttir