Systur taka þátt í Íslandsmóti í CrossFit
Íslandsmótið í CrossFit 2012 fer fram föstudaginn 30. nóvember og laugardaginn 1. desember nk. Keppendur verða 30 karlar og 30 konur og þar á meðal verða húnvetnsku systurnar Hjördís Ósk og Hafdís Ýr Óskarsdætur frá Hvammstanga.
Samkvæmt Norðanátt.is tryggði Hafdís Ýr sér þátttökurétt í forkeppni fyrir mótið sem fór fram þann 18. október sl. Hjördís Ósk hafði áður unnið sér inn þátttökurétt á mótinu vegna árangurs hennar í CrossFit Open 2012.
Íslandsmótið fer fram í húsnæði CrossFit Reykjavík á milli kl. 19:00 til 22:00 á föstudeginum og 10:00 til 16:00 á laugardeginum. Aðgangseyrir fyrir báða dagana er 1.000 kr. og er takmarkaður fjöldi miða.