Taka allt að 300 milljóna króna lán hjá KS
Byggðarráð Svf. Skagafjarðar samþykkti á fundi sínum í gær að taka lán hjá Kaupfélagi Skagfirðinga, samkvæmt fjármögnunarsamningi sem gerður var 22. apríl 2013, allt að 300 milljónir króna til fimm ára. Þetta kemur fram í fundargerð byggðarráðs.
Á fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2014 er heimild til lántöku að upphæð 868 milljónir króna en þegar höfðu 500 milljónir króna verið teknar að láni, samkvæmt fundargerðinni.