Táknmynd skólasamfélagsins austan-Vatna

Starfsmenn leikskólans Tröllaborgar og Grunnskólans austan-Vatna máluðu mynd af bláum hesti í sameiningu en hesturinn á myndinni táknar skólasamfélagið austan Vatna.

Myndin sem máluð var á jólahlaðborði skólanna þann 1. desember sl. var gert að fyrirmynd þekkts málverks eftir Franz Marc sem kallast Blái hesturinn eða „Das blaue Pferd.“ Allir sem mættu á hlaðborðið fengu lítinn númeraðan bút af málverkinu og hver og einn átti svo að mála eftir bútnum í réttan reit á striganum.

Hver bútur táknar einn einstakling úr skólasamfélaginu austan Vatna og þurfa þeir að standa þétt saman til að geta myndað þennan sterka og trausta hest, sem getur borið alla nemendur skólanna á baki sínu.

„Hesturinn þarf að vera heill, því þá kemst hann heill á leiðarenda með þá ábyrgð sem honum er falin. Myndin á að minna okkur á mikilvægi þess að við, sem starfsfólk skólanna austan Vatna, þurfum að mynda eina heild og standa saman, til að vera traustur förunautur fyrir nemendur okkar á þeirra lífsleið,“ segir á heimasíðu Leikskólans Tröllaborgar.

 

 

 

Fleiri fréttir