Tandoori Johnson á þorrablóti Umf. Kormáks
Þorrablót Umf. Kormáks verður haldið í Félagsheimilinu Hvammstanga á morgun, laugardaginn 9. febrúar, og hefst kl. 20:00. Húsið opnað kl. 19:30. Í nýjasta eintaki Sjónaukans segir að þar verði skemmtileg dagskrá og góður matur en Tandoori Johnson sjá um danstónlistina.
Miðasala fer fram í Byggingavörudeild KVH frá kl. 10:00 miðvikudaginn 6. febrúar en einnig er hægt að panta miða í netfanginu kormakur@simnet.is og síma 898 2413.
Aðgangseyrir kr. 7.000.