Tap gegn Víkingi en sætið í 1. deild loksins öruggt

Tindastóll og Víkingur Reykjavík áttust við á Sauðárkróksvelli í dag í 1. deildinni í knattspyrnu. Stólarnir áttu ekki góðan leik enda talsvert farið að kvarnast úr liðinu og unnu gestirnir sanngjarnan 3-0 sigur.

Talsverður sunnan strekkingur var á meðan á leik stóð og var það ekki til að gera leikmönnum auðveldara fyrir. Tindastóll hafði vindinn í bakið í fyrri hálfleik en það voru gestirnir sem sköpuðu sér nokkur ágæt færi eftir snarpar skyndisóknir. Stólunum gekk afleitlega að komast í færi og alltof oft duttu leikmenn í að reyna langar þversendingar eða stungur og yfirleitt með þeim árangri að boltinn fór út af. Þetta sýndi sig strax í upphafi en ekki virtust leikmenn Tindastóls læra af mistökunum og héldu uppteknum hætti út hálfleikinn. Stólarnir, sem eru orðnir ansi þunnskipaðir, urðu fyrir áfalli á 27. mínútu en þá varð Björn Anton fyrir meiðslum og inn kom Christopher Harrington sem var í raun eini leikhæfi leikmaðurinn á bekknum. Á 36. mínútu gerðu Víkingar glæsilegt mark úr skyndisókn. Stólarnir fengu aukaspyrnu á ágætum stað, Víkingar unnu boltann og sóttu hratt upp vinstri kantinn, sendu nákvæma sendingu inn á teiginn þar sem Viktor Jónsson var í dauðafæri og skoraði af öryggi. Staðan 0-1 í hálfleik.

Stólarnir reyndu hvað þeir gátu að koma sér inn í leikinn í síðari hálfleik en það voru gestirnir sem fengu nokkur dauðafæri sem þeim mistókst að nýta. Árni Arnarson var sendur í sturtu á 62. mínútu eftir að hafa fengið tvö gul, það fyrra kannski nokkuð harkalegt í fyrri hálfleik en hann átti skilið seinna gula spjaldið. Nú var við ramman reip að draga. Besta færi Tindastóls í leiknum fékk Chris Tsonis, fékk sendingu inn fyrir vörn Víkings, kom sér í ágætt skotfæri einn á móti Kale í marki Víkinga en kiksaði með miklum tilþrifum og boltinn skoppaði til hliðar. Skelfilegt. Skömmu síðar tók Kristinn Magnússon hornspyrnu fyrir Víking og sigldi boltanum beint í markið með hjálp sunnanvindsins. Robin Nijman gerði þriðja og síðasta mark leiksins á 78. mínútu. Jordan Branco reyndi að hreinsa frá vítateig Stólanna en sendi boltann í leikmann Víkings og þaðan barst boltinn í Robin sem var á auðum sjó og skoraði af öryggi. Gestirnir voru nær því að bæta við mörkum en Stólarnir að minnka muninn og lokatölur 0-3.

Leikmenn Tindastóls virkuðu frekar áhugalitlir í dag og höfðu kannski ekki trú á verkefninu. Talsverðar breytingar eru á liðinu sökum meiðsla og einhverjir eru farnir af landi brott og ljóst að þunnskipaður hópurinn má ekki við miklum áföllum. Nú hefði verið gott að leikmenn hefðu ekki yfirgefið skútuna í júlíglugganum. Lið Víkings spilaði ágætlega á köflum og kom vel skipulagt til leiks. Engu að síður var ljóður á leik þeirra hvernig leikmenn hentu sér ítrekað niður við minnstu snertingu æpandi á dómarann sem féll oftar en ekki í gildruna.

Tindastólsmenn geta þó glaðst yfir því að Þróttur Reykjavík lagði KF í dag og því ljóst að Stólarnir eru öruggir með sæti sitt í deildinni.

Fleiri fréttir