Tap og jafntefli í Lengjubikarnum
Meistaraflokkur Tindastóls í knattspyrnu lék tvo leiki um sl. helgi. Annar leikurinn var á móti Dalvík/Reyni í Boganum Akureyri á laugardeginum, 5. apríl og báru D/R þar sigur úr býtum, 2-1.
Samkvæmt vef Tindastóls virkuðu leikmenn Tindastóls þreyttir og kraftlitlir í upphafi leiks og var staðan í hálfleik 0 – 1. Í seinni hálfleik batnaði leikur Tindastóls aðeins en samt var liðið ekki að leika vel. D/R náði að auka forystuna, 0 – 2 á 73. mínútu.
„Þegar skammt var til leiksloka þá slapp hinn lipri Snorri Geir í gegn og eins og venjulega afgreiddi hann færið sitt af stakri snilld. Staðan 1 – 2 og smá vonarneisti kviknaði. Á síðustu mínútunni fékk Konni algert dauðafæri eftir hornspyrnu en markmaður D/R varði vel og þar við sat. Óhætt er að segja að leikmenn Tindastólsliðsins hafi á engan hátt fundið sig í þessum leik en áfram höldum við og horfum fram á veginn,“ segir á vefsíðunni.
Skoraði bæði mörkin með hægri
Seinni leikurinn var á móti Völsungum í Boganum sunnudaginn 6. apríl og var annar leikur Stólanna í Lengjubikarnum á tveimur dögum. Var fyrri hálfleikur í jafnvægi þó svo að Völsungur væri meira með boltann og komust þeir yfir á 29. mínútu með góðu skoti utan af velli. Staðan 1 – 0 og var hún þannig í hálfleik.
Í upphafi seinni hálfleiks mættu Stólarnir töluvert ákveðnari til leiks. Strax í fyrstu sókn liðsins þá fær Guðni boltann út á hægri kanti og á flottar fyrirgjöf á Ívar sem skaut í fyrsta með hægri og náði markmaður Völsungs að snerta boltann en ekki nóg, því inn lak boltinn. Staðan orðin 1 -1.
Á 81.mínútu sleppur svo Ívar einn inn fyrir vörn Völsungs og platar markmanninn upp úr skónum og leggur boltann í autt markið af mikilli yfirvegun. Staðan 1 – 2 fyrir Tindastóli og vert að taka fram að Ívar búinn að skora bæði mörkin með hægri en hann er í meira lagi örvfættur.
Á síðustu mínútum leiksins ná leikmenn Völsungs svo að jafna metin 2 -2 og urðu það lokatölur leiksins.
Sjá má nánari leiklýsingu á Tindastóll.is.