Tekið í spil á Hlíðarhúsinu - Myndir

Það var þétt setinn bekkurinn og glaðleg stemning á Hlíðarhúsinu í Óslandshlíð í Skagafirði á fimmtudagskvöldið fyrir rúmri viku. Um sextíu manns voru þar saman komnir til að spila félagsvist. Umrædd félagsvist hefur yfirleitt verið spiluð á milli jóla og nýárs, á vegum Ungmennafélagsins Neista.

Að þessu sinni leyfði veður ekki að spilað væri á hefðbundnum tíma svo það hefur eflaust verið langþráð hjá mörgum gestanna að koma saman og taka í spil og brá blaðamaður Feykis sér bæjarleið og tók þátt í skemmtuninni. Vegleg verðlaun voru veitt fyrir fyrstu þrjú sætin í hvorum flokki, auk þess sem glæsilegt kaffihlaðborð var innifalið í miðaverði.

Kvöldinu lauk svo með bögglauppboði sem Kristján frá Óslandi stýrði af miklum myndugleik og voru þar boðnir upp spennandi og innihaldsríkir bögglar sem seldir voru til styrktar Neista.

.

Fleiri fréttir