Það á að birta til á morgun

Heldur hefur lengst í gulu veðurviðvöruninn sem Veðurstofan skellti á Norðurland vestra í byrjun vikunnar. Fyrst átti hún að standa í um sólarhring, frá mánudegi til þriðjudags en nú þegar fimmtudagurinn rennur upp rennblautur og norðanbarinn þá er enn gul viðvörun og ekki útlit fyrir að henni verði aflétt fyrr en aðfaranótt föstudags.
Spáð er hellirigningu í Skagafirði í allan dag og dregur ekki úr að ráði fyrr en undir miðnætti. Heldur fá Húnvetningar færri dropa í dag enn grannarnir austan við þá. Enn er tiltölulega napurt, hitinn yfirleitt þetta 1-5 stig í dag og gæti síðan fryst á heiðum í nótt þannig að gera má ráð fyrir lítilsháttar snjókomu á Öxnadalsheiði og Holtavörðuheiði og ekki ólíklegt að Vatnsskarð og Þverárfjallið lúti sömu lögmálum.
Allir vegir eru greiðfærir sem stendur nema reyndar Þverárfjallsvegur en þar er krap á vegi og éljagangur sem stendur. Siglufjarðarvegur úr Fljótum og til Sigflufjarðar er greiðfær en vegna mikillar úrkomu er varað við mögulegum ofanflóðum á veginn og er möguleiki á grjóthruni, skriðum og krapaflóðum. Vegfarendur eru beðnir um að fara um með gát.
Veðurstofan gerir ráð fyrir að það birti til á morgun og vindur verði yfirleitt þetta 5 m/sek að norðan sem er jú talsverð framför frá síðustu dögum. Það verður engin sérstök sumarblíða um hvítasunnuhelgina en veður þó skaplegt.