Það er nóg komið segir Stefán Vagn

Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki hefur verið sannkallaður hornsteinn í héraði allt frá því að forveri hennar, Sjúkrahús Skagfirðinga var stofnað í ársbyrjun árið 1907, fyrir hartnær 105 árum síðan. Allan þennan tíma hefur stofnunin þjónað íbúum Skagafjarðar og nærsveitum með ómetanlegum hætti, segir Stefán Vagn Stefánsson formaður byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar í aðsendri grein hér á Feyki.

 

Stefán segir að íbúar Skagafjarðar virðist ekki hátt skrifaðir á forgangslistum velferðarstjórnarinnar þar sem þeir nutu lítils af hinu svokallaða góðæri en skulu taka á sig stærsta skellinn í niðurskurði á opinberum fjárframlögum.

„Grunnþjónusta virðist ekki eiga að vera í boði nema þar sem þenslan var mest. Það er nóg komið. Niðurskurðartillögurnar á að draga tafarlaust til baka og leggja þess í stað í þá nauðsynlegu greiningu, það áhættumat og mat á hættu á auknum kostnaði til lengri tíma litið, sem kveðið er á um í samstarfsyfirlýsingu stjórnarflokkanna að eigi að vera til grundvallar ákvörðunum um niðurskurð og sameiningu stofnana. Það eru fagleg og rétt vinnubrögð, í stað flausturslegs og handahófskennds niðurskurðar í fjárlagafrumvarpi næsta árs“, segir Stefán.

Fleiri fréttir