Það stefnir í sögulegan Grænan sal

Það er örugglega smá eftirvænting hjá einhverjum sem ætla að mæta í Bifröst nú á föstudagskvöldið en þar fara fram hinir árlegu tónleikar heimaalinna listamanna, Græni salurinn. Tónleikarnir að þessu sinni verða tileinkaðir minningu Gísla Þórs Ólafssonar, Gillons, sem lést snemma árs. Félagar hans í Contalgen Funeral munu troða upp á tónleikunum en langt er síðan hópurinn kom saman.
„Gunnars family, Lobbi Spör, Atli, Vinir Rögga, Vjæ Nott, Dúddarnir, Eftirgló JESS, Tríó Pilla Prakkó, Andri & Farmer John og Contalgen Funeral,“ þylur Guðbrandur Ægir tónleikahaldari upp þegar Feykir spyr hverjir muni mæta til leiks og bætir við: „Gunnars family eru Gunni á Löngumýri og afkomendur, Lobbi Spör er grínisti af sjónum, Væ nott eru Baldvin og Valgerður Erlings plús hljómsveit.“ Þá mætir Kalli Bjarni, oft kenndur við Idol, með Kristjáni Reyni í Eftirgló en Ægir segir að kunningjar Græna salarins ættu að kannast við rest.
Stórir skór
Feykir spurði Pilla prakkó hvort boðið verði upp á nýmeti eða hvort tríóið skelli sér í sígildan Megasar bragðaref. „Við ætlum að heiðra afmælisdrenginn Megas og taka fjögur lög úr sitthverri áttinni frá honum. Spáðu í mig, Saga úr sveitinni, Paradísarfuglinn og Lóa Lóa.“ Einhver afföll eru í fjölskipuðu tríóinu en trommarinn og lyklafræðingurinn sleikja nú sólina utan skagfirska efnahagssvæðisins. Jói nokkur Friðriks mun sjá um ásláttinn í fjarveru Arnars en hann er ekki nýgræðingur í bransanum. Gunni Rögg telur allar líkur á því að Gunnars family – sem á þó væntanlega ekkert skilt við majónesið – muni flytja frumstolin lög með heimagerðum heimsósóma.
Mexíkróksarinn Andri Már treður upp í tveimur atriðum, þ.e.a.s. með Andri&theFarmer og hinni goðsagnakenndu sveit Contalgen Funeral. Feykir spurði hann hvort Contalgenið væri eitthvað búið að æfa og hversu langt væri síðan þau hefðu síðast troðið upp á tónleikum. „Mjög mörg ár síðan,“ sagði Andri. „Við höfum æft smávegis en síðasta gigg var á Rósenberg minnir mig. Writers Retreat sem fyrrverandi forsetafrú Íslands stóð fyrir og hittum við einnig forsetan þar. Andri segir að það komi í hlut Vignis Kjartans að fylla skarð Gísla heitins. „Stórir skór,“ segir Andri. Contalgenið mun flytja sigilt stöff – eitthvað fyrir bætir Andri við og bendir á að nýtt efni verður í boði hjá Andri&theFarmer.
Bifröstin verður opnuð kl. 20 og vonast Ægir til að hægt verði að byrja eins fljótt og unnt er. Aðgangseyrir er kr. 2.500 en enginn posi er á staðnum. Hraðbanki er þó í um 100 skrefa fjarlægð – það þarf bara að laumast framhjá lögreglustöðinni.