Þemadagar hafnir í Árskóla - fylgist með á Twitter

Þemadagar hófust í Árskóla á Sauðárkróki í dag og standa til miðvikudags en þemað að þessu sinni er tileinkað endurvinnslu. Opið hús er í skólanum þessa dagana en einnig er hægt að fylgjast með Þemadögum, og öðru starfi skólans, á nýrri Twitter síðu Árskóla.

Á vef skólans segir að skólinn er þátttakandi í Comeniusarverkefni á miðstigi, með grunnskólum í átta öðrum löndum, og er þemavinnan í ár liður í þátttöku skólans í verkefninu. Comeniusarverkefnið tengist endurvinnslu og nefnist „Waste not, want not“.

Fimmtudaginn 9. október kl. 9:30 verða fulltrúar átta landa í Comeniusarverkefninu boðnir velkomnir í Íþróttahúsinu. Að venju fer dansmaraþon 10. bekkinga fram í þemavikunni og verður flautað til leiks kl. 10:00 fimmtudag og stendur til kl. 12:00 á föstudag. Danssýning allra nemenda kl. 17:00 á fimmtudag í Íþróttahúsinu.

„Opið hús verður í skólanum alla þessa daga og er öllum velkomið að líta við og fylgjast með vinnu nemenda. Vonumst eftir að sjá ykkur sem flest í skólanum þessa daga,“ segir loks á vefnum.

Fleiri fréttir