Þemadagar í Árskóla
Á morgun hefjast þemadagar í Árskóla. Eru þemað að þessu sinn tileinkað starfi skólans, nýjungum í kennsluháttum, hefðum, viðburðadögum árshátíðum og fleiru. Þemadagarnir enda með opnu húsi á laugardaginn.
Tveir árgangar vinna saman í hóprum og verða að störfum frá 8:10 til 13:10 þessa þrjá daga, frá miðvikudegi til föstudags. Eru allir velkomnir ða líta ivð og fylgjast með vinnu nemenda á þemadögum.
Næstkomandi laugardag verður svo sýning og opið hús í Árskóla frá kl. 11 til 14. Þar verður opið kaffihús þar sem nemendur selja kaffi, djús og meðlæti sem þeir hafa bakað og einnig verður sölubás með ýmsum varningi sem nemendur hafa búið til. Rennur allur ágóði til góðgerðarmála.