Þétt setinn bekkurinn á Hrossablóti í Varmahlíð

Árlegt Hrossablót Söguseturs íslenska hestsins og Hótel Varmahlíðar var haldið síðastliðið laugardagskvöld. Uppselt var á blótið og komust færri að en vildu.  Bornar voru á borð miklar kræsingar, enda um sannkallaða sælkeraveislu að ræða, og ekki annað að heyra en að gestir hafi verið yfir sig ánægðir með blótið. 

Þeir réttir sem gestir nutu voru hrossatart með kryddjurtamajonesi og klettasalati, villikryddaðar hrossapylsur með sólberja og rauðlaukssósu og reykt folaldatunga sem bráðnaði í munni að sögn gesta.  Aðalréttur var hrossa- og folaldalund borin fram sósu úr Gæðingi Stout - hinum eina sanna skagfirska bjór. Í eftirrétt þáðu gestir dýrindis tvílita súkkulaðimús.

Andlegt fóður var heldur ekki af verri endanum þar sem Helga Rós Indriðadóttir söng alþekkt hestalög við undirleik Thomasar Higgersonar og Björn Björnsson sagði sögur af hestamönnum og öðru góðu fólki. Veislustjóri var Ólafur Sigurgeirsson sem er landsmönnum m.a. vel kunnur sem þaulsetnasti Útsvarsþátttakandi Skagfirðinga.

Fram kemur á heimasíðu Hótel Varmahlíðar að fólk getur strax látið sig hlakka til næsta Hrossablóts sem haldið verður þann 20. október 2012.

Útsendari Feykis var á vappi á Hótel Varmahlíð á meðan á blótinu stóð og náði nokkrum myndum úr sal og úr eldhúsi þar sem hótelstýran Svanhildur Pálsdóttir samstarfsfólk hennar fór á miklum kostum.

Fleiri fréttir