Þéttskipaður rúntur
feykir.is
Skagafjörður
20.01.2014
kl. 09.10
http://www.youtube.com/watch?v=rRbiYvb4xTA&feature=share
Vegfarendur töldu á annað hundrað þéttsetna bíla á rúntinum á Sauðárkróki á laugardagskvöldið en þá stóðu ættingjar og vinir Önnu Jónu Sigurbjörnsdóttur, sem lést í bílslysi í Norðurárdal, fyrir fjölmennum rúnti í minningu hennar.
Anna Jóna hefði orðið 17 ára á laugardaginn og fengið bílpróf sama dag. Ákveðið var að minnast þess með því að fjölmenna á rúntinn "því það hefði hún sennilega gert sjálf, eins og flestir gera þegar þeir fá bílpróf“ eins og sagði í tilkynningu sem dreift var um netið til að hvetja sem flesta til að mæta.