Þjóðleg tíska í Varmahlíðarskóla
Sl. mánudag mættu nemendur og starfsmenn Varmahlíðarskóla í „gömlum fötum“ í bland við tískustrauma nútímans og settu þannig svip á daginn í tilefni þorrakomu. Blásið var til samveru á sal þar sem nemendur í 2. – 5. bekk komu fram og lásu fróðleik um þorrann, og eldri nemendur léku á dragspil, flautu, klarínett og píanó.
Þá var þorri blótaður í matsalnum með miklum og sterkum söng og þjóðlegum mat og segir á heimasíðu skólans að samveran hafi verið gríðarlega skemmtileg og gaman að sjá áhuga allra viðstaddra á þessum þætti í íslenskri hefð.